Hjólavillingar

05.04.2007 11:54:47 / steina

FLUTT /HÆTT HÉR

Jæja þá er ég hætt hér, erum komin með nýja síðu.

 

www.123.is/hjolavillingar

 

endilega að skoða þar , var að henda inn bloggi.

kveðaj Steina8) 



» 0 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 12:45:53 / steina

Bolalda

Svona var í Bolöldu fyrr í vikuni, mynd af stóru brautini


mynd frá motocross.is

og svo ein loft mynd af svæðinu

þetta eru bautirnar og síðan

 

slóðakort Bolöldu, hef ég hjólað allt nema, já auðvita var nema, en ég hef ekki farið Jósepsdalsskarð og Dverghamarsveg en allt annað hef ég bara hjólað , og hlakkar mig alveg rosalega til þegar verður hægt að fara að hjóla þarna aftur. 

kkveð að sinni SS 

 

 


 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 20:22:44 / steina

jamm

Jæja þá er búið að ferma drenginn og gekk allt vel fyrir sig, komu margir og fögnuð þessum áfanga með okkur og viljum við þakka öllum fyrir það.

og svo ein mynd af systkinunum á fermingardaginn, svo sæt og fín

og Bjarki frændi að fá að prófa hjálminn með nýju gleraugun.

Nú eru bara næsta stórveisla þegar Sandra verður stúdent:haha:

Svo nú er bara að fara að hjóla og hjóla og hjóla, páskarnir í næstu viku.

Hvert verður farið að hjóla um helgina kemur bara í ljós, en það verður hjólað, það eru 3 vikur síðan ég fór að hjóla síðast svo það er komin tími til að taka á því.

Svo er Óskar komin með grænt ljós á að fara að hjóla aftur, sem er bara gaman:!:

en þetta er bara gott í bili kv SS

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 18:44:09 / steina

Ekki hjólað þessa helgi

Já það er víst að ekki verður hjólað þessa helgi, en litla barnið á heimilinu verður fermt á sunnudaginn og er nóg að gera, en við verðum fljót að bæta það upp. því eftir næstu helgi verður veturinn bara búinn, er búin að panta það, og nú er orðið svo bjart lengi að maður fer að fara eftir vinnu og hjóla.Það kemur svo mikil orka með birtunni.:P

og svo ein mynd af kellinguni að leika sér í fjöruni í sandvík

Við erum búin að panta bústað á klaustri og verða Dísa og Óskar með okkur og á ég von á að Valli og Kristín mæti með tjaldvagninn nýja.Og verður þetta bara gaman:haha:

hætt að bulla kv SS

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 22:56:52 / steina

Klaustur

Hæ hæ

Það var bara ekki neitt hjólað þessa helgina, bara eintóm leti í gangi. 8)

Ásgeir er búinn að skrá sig í klausturskeppinina og ætlar hann að hjóla á móti Óskari brotna,

og á nú sennilega að taka vel á því í ræktini næstu vikurnar:haha:

Ætlum við Robbi að vera með í keppnini, Robbi í 125 og ég í kvennaflokk. Ég ætla að vera með en Robbi ætlar að keppa.

Hér er ein mynd frá klaustri 2005 Ásgeri er þarna fjórði frá hægri :haha: nei ég segi nú bara svona en Ásgeir er einhverstaðar þarna í hópnum.


og síðan 2006. Og svo er bara að sjá hvort þolið hafi eithvað aukist  í vetur.

kveð að sinni  SS

 

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.03.2007 10:29:19 / steina

já já

Halló

Tími fyrir blogg, já vegna þess að ég hef tíma, ég er jú ekki að hjóla eða gera neitt annað bara í leti. Stefnan tekin á að hjóla á morgun á einhvern góðan stað. Sá slasaði er að verða góður kominn með svakalegan marblett á ilina.

Bolalda fyrir ári síðan, engin braut komin.

komið fullt af lífi á Bolöldusvæðið í júlí og 3 brautir og fult af Enduro slóðum

Svona leit stóra motocrossbrautin út í des 2006, ekki mikið hægt að hjóla, hefði gengið með bát

og svona var svæðið í jan 2007.

það er svo gaman að hjóla þarna. Við höfum hjólað þarna í öllum veðrum og allskonar færi, bara gaman. En nóg um það, var að setja nokkrar myndir frá síðasta sumri, frá krakkaæfingu hjá Robba og frá vinnuferð í Álfsnes, ég hef ekki hjólað í Álfsnesbrautini, en hef hreinsað grjót og verið flaggari, en ætla að bæta ur því næsta sumar. Ég held bara að ég sé komin með sumar í heilan:haha:

hætt að bulla kv SS með sól í heilanum:D

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 21:31:01 / steina

mig langar í sumarrrrrrr

Hæ hæ

Allt fín að fétta hér á bæ, sá slasaði allur að koma til, finnur þó enn til í fætinum.

Stittist í fermingu :o, en ég ætla nú samt að hjóla um næstu helgi ef veður verður þokkalega gott.

Mig langar svo í sumar og sól og gott veður.

Robbi á æfingu síðasta vor uppi í bolöldu á gamla hjólinu

sumarið kemur alltaf á endanum, samk dagatali.:haha: hvot ég fæ sól og hita er annað mál,

 

kv SS;)

 

 

 

 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 16:08:34 / steina

Hjólað laugardag

Halló

Það var aðeins hjólað í gær, fórum snemma í Sandvík, fórum áður en það kom vont veður.

Það var ekki hjólað mikið þó veðrið hafi verið æðislegt og maður var bara léttklæddur.

En þegar við vorum að byrja að hjóla vorum bara að leggja af stað þá hjólaði Robbi á pabba sinn, eða lenti á aftur dekkinu hjá Ásgeiri og flaug á hausinn, og var lendingin ekki þægileg, meiddi hann sig í fætinum, en Ásgeir slapp.

verið að huga að þeim slasaða;) , en sem betur fer þá jafnar hann sig fljótlega, er bólginn og haltrar um, en þetta var sem sé stutt hjólaferð hjá Robba. En þegar var búið að koma honum vel fyrir og fá hjólaleyfi þá ætluðum við Ásgeir að taka smá hring, en þá fór hjólið hans Ásgeirs ekki í gang:evil:

nú svo ég mátti gjörasvo vel að deaga hann í gang og gekk það í 3 tilraun, sem sé spottin siltnaði 2x, en síðan hafðist það og fórum við tvo hringi í brautini og hún var helv erfið, ég var bara í tómu tjóni í seinni hringnum,valt á hliðina 2x, sem segir kannski bara hversu þolið hjá mér er gott:haha:

En við hjóluðum ekki mikið þar sem litla barnið var úr leik og beið í bílnum með bilaðan fót.

Þegar við vorum að ganga frá hjólunum þá sáum við að hjólið hans Robba hafði fengið að kenna á nöglunum á hjólinu hjá Ásgeiri

djúpu rispurnar eftir naglana

og hér líka. Þannig að Robbi var heppin að hann lenti ekki í dekkinu, Robbi er með ádreparasnúru þannig að þegar hann flaug á hausinn þá kipptist snúran úr sambandi og drap á hjólinu, en hann slapp sem betur fer vel, og verður kominn að hjóla um næstu helgi:P

jæja þá er þetta bara komið þar til næst.

bæ bæ SS

Ásgeir muna að setja hjólið í hleðslu :haha:

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 22:58:15 / steina

Tékka myndir

Búið að skrifa undir myndir helgarinnar endilega að tékka á því

kv SS 


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.03.2007 23:04:07 / steina

Helgin

hæ hæ

Ég var að setja inn myndir frá helgini, en Robbi og Ásgeir fóru að hjóla á laugardag. Fóru þeir upp í Botnsúlur, fóru þeir ásamt Valda og pabba hans Valda, Tóta túrbó. Og ég veit að það var rosalega gaman, ég var ekki með svo ég hef ekki ferða sögunna, nema það að sumir festu sig :haha: og þetta var bara gaman,ein skemtilegasta ferð sem Robbi hefur farið í. Ég hefði kanski getað hjólað þetta að mestu, en voru þarna brekkur sem ég er ekki svo vissum að ég hefði farið. Ásgeir ætlar að skrifa undir myndirnar seinna.


Robbi og Valdi á ís.

kv SS:D

ps. Kristín það fór enginn óskalisti hér inn, vertu bara í sambandi.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.03.2007 22:13:48 / steina

Hellú

Jæja þá er bara komin helgi strax aftur, ekki það að ég sé að kvarta, bara fínt það. eithvað á nú að hjóla um helgina, en það ekki ákveðið hvert eða hverjir ætla, en það kemur í ljós allt saman. Eru feðgarnir úti í bílskúr að skipta um stýri á hjólinu hans Ásgeirs þar sem hann fór eithvað illa með stýrið um síðustu helgi þ.a.s. hann eyðilagði það :haha::haha: eða eithvað, allavega nýtt stýri á.

Um síðustu helgi þá vorum við í sandvík að hjóla í frábæru veðri, og þegar við vorum hætt þá ákváðum við að kíkja á wilson Muuga

og var umferðin þangað eins og á Laugarveginum, en bara gaman að kíkja á dallinn,

síðan var þarna varðskip ( held ég ) og var eins og þeir hefðu parkerað við vitann og kíkt í kaffi.

sem sé smá bíltúr eftir hjólatúrinn, ætluðum líka að keyra að keili en nenntum síðan ekki og héldum bara heim.

Sandra og Róbert fóru í skíðaferð með skólanum, fór Robbi á miðvikud /fimmtud og Sandra fimmtud/föstud og var rosa gaman og fóru þau bæði á snjóbretti, og fanst bara gaman, það var sem sé smá snjór svo þetta var skíðaferð en ekki skálaferð eins og oft áður.

jæja hætt i bili kv SS

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 20:50:27 / steina

Well well

þá er komin tími á eins og eitt blogg. höfum verið mjög dugleg að hjóla undanfarið. Og hefur Sandra komið með okkur, er það rosalega gaman að við skulum öll vera að hjóla saman.

Við fórum í sandvík 17/2 og hjóluðum og var bara gaman, er búin að setja nokkrar myndir frá því

Ásgeir og Sandra

Síðan fórum við upp í Bolöldu 22/2 og fórum í ljósaferð

það var mikið myrkur og ljósin virkuðu vel, hjóluðum við Ásgeir aðalega, var vindur og kalt.

Hjóluðum við aðeins í endurobrautini og vað það mjög gaman, svoldið frosið. þegar við komum síðan í bílinn þá var hann bara rafmagnslaus:(, en viðgerða maðurinn (minn) reddaði því og var hjólið mitt látið hlaða rafgeyminn, og komumst við heim að lokum úr myrkrinu. ég á sko alveg súper hjól.:haha:

Nú svo var hjólað í saandvík á laugardaginn 24/2

Það var bara gaman, hjóluðum við endurohringinn, ég fór 4 hringi og strákarnir 5, ég stefni á 5 næst:haha:

Síðan fórum við í nágreni Hellu og hjóluðum á sunnudag, var allt frosið og var gaman að hjóla í brekkunum, allir fundu hjólaleiðir við sitt hæfi,

og fórum við mis hátt í brekkurnar, en þar sem allt var svona frosið þá var auðveldara að eiga við brekkurnar og ekki spillti fyrir að það var lækur sem var hægt að hjóla yfir á mörgum stöðum, og svo var þarna á sem ég mæli ekki með að sé verið að hjóla ofaní, en þegar við vorum búinn að hjóla í góðan tíma þá fylgi ég Söndru upp í bíl og strákarnir fóru aðeins að reyna við brekkurnar.

Síðan koma Valdi og félagi hans á svæðið og fara að hjóla en koma fljótlega til baka aftur og ná í kaðal:$ nú þá fer ég að ath með strákana og finn Robba við ána og Ásgeir ofaní :S

Strákarnir komnir til að bjarga honum upp. og gekk það, síðan var hann dregin í átt að bílnum og gekk það mjög vel í fyrstu en þegar þeir eru komnir upp og á slóðann þá fær Ásgeir þessa líka rosa byltu, hann flýgur á hausinn,þvílík detta, hann var heppinn að meiða sig ekki meir, en hann er marin á lærinu og fékk smá hrufl í andlitið, það er sko alveg víst að öryggisbúnaðurinn sem við notum er að virka, en þetta var alveg helv vont:cry: Svo var hjólunum hent upp á kerru, og var Ásgeir orðinn ansi kaldur á fótunum þegar það var búið, skelti hann sér í þurr föt og svo brunað í bæinn Ásgeir með kælipoka á lærinu, þannig að nú er hann með freðið læri:haha:

nei ég segi nú bara svona, síðan var hjólið hans Ásgeirs rifið í sundur og gert það sem þarf til að koma því í gang aftur ( er ekki með þetta alveg , fyrir mér var þetta bara rifið í sundur, tæmdur vökvi,sett saman og settur vökvi (olía,bensín) og svo í gang) en allavega fór hjólið í gang og verður þá hægt að hjóla þegar Ásgeir er orðinn góður í lærinu.Þetta var nú það helsta af okkar hjólaferðum, og er bara búið að vera gaman.

þegar Ásgeir lenti útí ánni þá var Robbi búinn að segja við hann að hann ætti nú ekki að vera að fara þarna, hefði kanski átt að hlusta á barnið:haha: síðan þegar var verið að draga hann þá festi hann kaðalinn ekk rétt. En maður verður víst að læra af mistökunum.8|

en þetta var samt mjög skemmtileg ferð.

læt þetta duga í bili

kv SS:haha:

ps komnar myndir

 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 15:51:25 / steina

Myndir

Hæ hæ

Var að setja inn myndir frá hjólaferð Ásgeirs og Valda frá því á laugardag.

eins og sjá má þá voru engar kellingar með.

en hér er Ásgeir kominn ansi hátt upp, Valdi sést þarna neðst, svo sét í veginn sem liggur út úr dalnum, en það var bara gaman hjá þein:haha:

Stefnum á að hjóla um helgina, nema hvað, kemur bara í ljós hvert við förum.

Svo á laugardag er það ammælikaka, held ég ???????? :$

 

bið að heilsa kv SS

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 09:54:18 / steina

Hún á afmæli í dag !!!

Hún á afmæli í dag

Hún á afmæli í dag

Hún á afmæli hún Ásdís

Hún á afmæli í dag

til hamingju með daginn elsku besta Ásdís, nú fyrst ferðu að verða pæja:haha: og getur komið að hjóla með okkur. vonum að þú eigir góðan dag, hlökkum til að fá afmælisköku :haha:

 


nammi namm

kveðja Hólavillingarnir


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 19:27:42 / steina

jæja

Hellú

Þá er bara að blogga smá um síðustu hjólaferð, sem var farin á sunnudag og var förini heitið í ÞB.

Og var veðrið hið fínasta,var allt frosið, það hafði greinilega verið hjólað mikið á laugardeginum,  voru nokkrir aðrir hjólarar þarna á sunnud. Það er hægt að hjóla þarna á svo stóru svæði að maður sér varla aðra sem eru á svæðinu, við vorum bara ein í heiminum.


Sjórinn flottur.

við Sandra skiptumst á að hjóla á mínu hjóli og xt-inu, og var bara gaman að hjóla aðeins á xt-inu, en ég væri ekki til í að hjóla langt eða mjög lengi á þessum hlunk sem xt er, ég sem var að segja að mitt hjól væri þungt og milill hlunkur en nei nei mitt hjól er alveg súper gott !!!!!!;)

Í fjöruni rákumst við á eitt stikki dauðan hval, en Jónas var ekki í honum... ha ha ha

mér fanst hann bara frekar mikið ógeð, fann hvorki augu né munn á þessu ferlíki.

En það er ekki neitt lítið af drasli sem er þarna í fjöruni, mikið af plastdrasli.

En við hjóluðun nokkuð bara nokkuð lengi, Sandra fann sér brekku til að takast á við, og fer henni mikið framm að hjóla, hún tekur bráðum framm úr mér kelluni, annars er ég að reyna að æfa mig í að stökkva,:haha: og gengur hægt, en er í rétta átt ( upp). 

Bað strákana að taka mynd af mér þegar við vorum síðast í SV en það gleymdist, kanski eins gott því þá sé ég að ég er ekki að stökkva, heldur rétt næ að láta lofta á milli jarðar og dekkja:haha: en það er takmarkið að verða betri, og betri og allt.

Flott fjölsk.........

Annars er það að frétta að ég setti inn niðurtalningu á ferminguni hjá Robba og er stittra í hana en ég hefði haldið, svo það er eins gott að fara að undirbúa eithvað:o Var að hugsa um að setja óskalista eða hugmindir að gjöfum hér inn á síðuna. Eitthvað tengjast þær áhugamálinu grunar mig, en hann sagðist ekki vita um neitt sem honum langaði í, en svo minntist ég á Pastrana og þá komu nokkrar hugmyndir frá honum, set það fljótlega inn.

Sandra fór í gær á námskeið í eldamensku á grænmetisréttum fór hún með Ömmu G gömlu og gekk það bara mjög vel og fær hún nú að spreyta sig í eldhúsinu, stefnum á kjötlausan dag einu sinni í viku, það verður að duga þgegar maður býr með svona miklu kjötfólki.

Ásgeir fór að hjóla á laugardeginum með Valda og var tekið vel á því enda engar kerlingar með og tók hann nokkrar myndir, set þær inn bráðum.

 

Held að þetta sé nó af bulli í bili.

Kv SS

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Dagsetning
10. febrúar 2012
Klukkan